Skilmálar fyrir Hundahótelið Ásbrú
Blæðingar/Lóðarí
Ekki er tekið við tíkum á blæðingum eða lóðaríi.
Kortaupplýsingar
Ekki greiðist fyrir dvöl hunds sjálfkrafa við bókum. Greiðsla fer fram við komu eða brottför.
Almennar Upplýsingar
Innskráning er milli 13:00 og 18:00.
Útskráning er á milli 08:00 og 13:00.
Innskráning er milli 13:00 og 18:00 og útskráning á milli 08:00 og 13:00 ef þú þarft að koma með að morgni til er nauðsynlegt að panta frá deginum áður, sama á við ef þú þarft að sækja seinnipart þá þarf bókunin að vera degi lengur þar sem klefi þarf að vera til staðar. Ekki er hægt að taka á móti dýri nema klefi sé til fyrir hann. Þar sem fólk hefur verið mjög ótímanlegt þá verðum við að fara í þessa nauðsynlegu breytingu á inn og útskráningar tímum.
Afbókun
Ekkert mál er að afbóka gistingu en gera þarf það með 48 tíma fyrirvara símleiðis eða með tölvupósti ef látið er vita með minni fyrirvara greiðist ein gistinótt fyrir.
Ef ekki er mætt sólarhringi eftir að dvöl á að hefjast er bókun eytt og greiðist ein gistinótt fyrir.
Endurgreiðslu Stefna
Vinsamlegast yfirfarið tímalengd hundsins þar sem ekki er endurgreitt fyrir gistingu ef hundurinn er sóttur fyrir ákveðinn heimfaradag.
Öryggisskilmálar
Þær persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal þar rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.