Hvernig lífið er á hótelinu

08:00 – 09:00

Matargjafir og skiptum um vatn hjá öllum.

08:00 – 12:00

Útivera, allir hundar fá útiveru í gerði.

Þeir sem vilja það ekki fá sinn einkatíma í gerðinu.

Eigendur láta okkur vita við skráningu hvort hundurinn vill umgangast aðra hunda, ef ekki fá þau einkatíma í gerðinu. Skipt er í smáhunda og stóra hunda.

12:00 – 13:00

Hvíldartími hundanna *

Á þessum tíma reynum við að halda allri röskun í lágmarki svo hundarnir fái nauðsynlega hvíld og höfum róandi tónlist í gangi.

13:00 – 16:00

Hreyfing, göngutúrar, myndatökur og áfram skemtilegheit.

16:00 – 18:00

Matargjafir ásamt útiveru.

* Við skulum vera hreinskilin, það er ekki fyrir alla hunda að vera á hundahóteli. Það getur verið stressandi, nýr staður, nýtt fólk, ný hljóð, aðrir hundar og allskonar lykt. Því eru hvíldartímar nauðsynlegir fyrir hundinn. Fullorðnir hundar þurfa almennt að sofa um það bil 12-16 klst á sólarhring, meðan hvolpar þurfa 18 klst. Að fá ekki nægan svefn eykur stress og kvíða. Þess vegna leggjum við áherslu á að hvíldartíminn sé á jöfnum tímum yfir sólarhringinn, á þessum tíma er spiluð róleg tónlist og enginn umgangur er um hunda álmuna, hundar í lengri dvöl læra fljótt að þegar tónlistinn kemur á mun ekkert vera að gerast og þá fara þeir áhyggjulausir að sofa. Þannig náum við að tryggja að hundarnir fái þann frið sem þeir þurfa til þess að hvílast nóg. Enn hver og einn hundur hefur sinar sérþarfir sem við reynum að sinna af okkar bestu kostgæfni.